Bókhald og rekstur
Lærðu allt um bókhald og um leið grunnatriðin í rekstri fyrirtækja
Um námskeiðið
Lærðu allt um bókhald og um leið grunnatriðin í rekstri fyrirtækja. Á námskeiðinu munt þú læra eftirfarandi:
- Færsla bókhalds: Hvernig þú kemur reglu á bókhaldið og nýtir það til betri ákvörðunartöku.
- Debet og kredit: Tvíhliða bókhald loksins útskýrt á mannamáli.
- Bókhaldsjafnan: Eignir = skuldir+eigið fé er jafna sem sem mun ekki lengur flækjast fyrir þér.
- Ársreikningar: Helstu liðir ársreikninga útskýrðir með sýnidæmum.
- Skattar: Nákvæmt yfirlit um virðisaukaskatt og skattframtöl.
Námskeiðið samanstendur af 14 fyrirlestrum. Að því loknu munt þú hafa heildstæðan skilning á bókhaldi og rekstri fyrirtækja.
Námskeiðið er kennt á netinu og þú færð aðgang að öllu efninu um leið og þú skráir þig. Þú getur spurt spurninga inni á lokuðu spjallsvæði sem er innifalið með námskeiðinu.
Skráning
Vefnámskeið um bókhald og rekstur. Innifalið eru 14 fyrirlestrar, spurningasvæði og skírteini þegar þú klárar.
Skráðu þig hér
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja ...
- koma reglu á bókhald fyrirtækja
- taka betri ákvarðnir í rekstri
- skilja betur grunnatriðin á bakvið rekstur fyrirtækja
- bæta sig með nýjum hæfileikum og þekkingu
Hvað mun ég læra?
Þegar þú lýkur námskeiðinu munt þú skilja ...
- muninn á debet og kredit
- uppbyggingu ársreikninga
- hvernig hægt er að nýta bókhald til ákvörðunartöku
- aðalatriðin í færslu bókhalds
14 fyrirlestrar | aðstoð innifalin
Kennarinn svarar spurningum inn á lokuðu spjallsvæði sem er innifalið með námskeiðinu.
Námskeiðið er kennt á netinu. Þú getur byrjað hvenær sem er.
Kennarinn þinn
Silja
Silja Ósvaldsdóttir er eigandi og framkvæmdastjóri bókhaldsfyrirtækisins Fastlands. Hún hefur áralanga reynslu af rekstri og starfaði áður sem framkvæmdastjóri Álnabæjar og Völusteins. Hjá Fastlandi starfa 11 bókarar og viðskiptafræðingar undir styrkri leiðsögn Silju. Silja er með gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Silja hefur síðustu ár kennt bókhald hjá Ljósmyndaskólanum og hjálpað mörgum að stíga sín fyrstu skref í eign rekstri.
Hún leggur áherslu á að útskýra námsefnið á skemmtilegan og aðgengilegan hátt með nóg af sýnidæmum.
Styrktu ferilskrána
Þegar þú hefur lokið við námskeiðið færðu útskriftarskírteini sem staðfestir það sem þú lærðir.
Þú getur notað skírteinið til þess að sýna núverandi eða verðandi vinnuveitanda þínum eða sett staðfestinguna á ferilskrána þína.