Google Analytics
Lærðu að mæla og skilja hegðun notenda með fullkomnasta vefmælingartóli heims
Um námskeiðið
Lærðu á Google Analytics og bættu virkni vefsíðunnar þinnar. Á námskeiðinu munt þú læra eftirfarandi:
- Uppsetning: Hvernig best er að setja upp Google Analytics fyrir vefsíðu.
- Mælaborð: Notkun mælaborðs til þess að sýna mikilvægustu upplýsingar á fljótlegan hátt.
- Umferð: Mælingar og skilningur á fjölda gesta, heimsókna og flettinga
- Hegðun notenda: Ferðalag notenda í gegnum vefsíðuna og hegðun þeirra á hverri síðu.
- Markmið: Hvernig skilgreina má viðskiptaleg markmið um hegðun, til dæmis að vara sé keypt.
- Auglýsingaherferðir: Mælingar á árangri auglýsingaherferða.
Námskeiðið samanstendur af 14 fyrirlestrum. Að því loknu munt þú hafa heildstæðan skilning á Google Analytics auk þekkingar á helstu leiðum til að bæta virkni síðunnar þinnar.
Námskeiðið er kennt á netinu og þú færð aðgang að öllu efninu um leið og þú skráir þig. Þú getur spurt spurninga inni á lokuðu spjallsvæði sem er innifalið með námskeiðinu.
Skráning
Vefnámskeið um Google Analytics. Innifalið eru 14 fyrirlestrar, spurningasvæði og skírteini þegar þú klárar.
Skráðu þig hér
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja ...
- ná góðum tökum á Google Analytics
- mæla fjölda og hegðun notenda vefsíðna
- setja sér markmið í markaðsmálum og mæla árangur
- bæta sig með nýjum hæfileikum og þekkingu
Hvað mun ég læra?
Þegar þú lýkur námskeiðinu munt þú skilja ...
- hvernig á að mæla fjölda gesta, heimsókna og flettinga
- hvaðan notendur koma inn á vefsíðuna þína
- hegðun notenda og hvernig má bæta upplifun þeirra
- hvernig má setja upp markmið um notkun síðunnar
14 fyrirlestrar | aðstoð innifalin
Kennarinn svarar spurningum inn á lokuðu spjallsvæði sem er innifalið með námskeiðinu.
Námskeiðið er kennt á netinu. Þú getur byrjað hvenær sem er.
Kennarinn þinn
Sverrir
Sverrir Arnórsson er sérfræðingur Frama í Google Analytics og skilar reglulega inn skýrslum um hvað betur mætti fara í hönnun vefsíðunnar. Þessar skýrslur eru byggðar á hegðun notenda inni á vefsíðunni og koma sér vel þegar við hjá Frama viljum bæta upplifun nemenda.
Sverrir leggur áherslu á að útskýra námsefnið á einfaldan hátt og forðast að nota tæknilegar útskýringar. Google Analytics verður á þennan hátt aðgengilegt fyrir alla nemendur óháð reynslu.
Sverrir er með burtfararpróf í sellóleik og er áhugamaður um klassíska tónlist. Hann leggur nú stund á iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands.
Styrktu ferilskrána
Þegar þú hefur lokið við námskeiðið færðu útskriftarskírteini sem staðfestir það sem þú lærðir.
Þú getur notað skírteinið til þess að sýna núverandi eða verðandi vinnuveitanda þínum eða sett staðfestinguna á ferilskrána þína.